GISTING

Volcano 73

Volcano'73 er fjölskyldurekið gistiheimili staðsett aðeins 450 metra frá höfninni.


Húsnæðið býður upp á sveigjanlega gistingu sem hentar bæði stærri hópum og einstaklingum. Hægt er að leigja eignina í heild sem rúmgóða íbúð með samtals 8 herbergjum sem rúma allt að 28 gesti, en einnig er í boði að bóka herbergi hvert fyrir sig líkt og á hefðbundnu gistiheimili.


Í húsinu er að finna vel búið eldhús og rúmgóða setustofu. Sameiginleg baðherbergi eru til staðar og tryggja þægindi fyrir alla gesti.

Ókeypis WiFi er aðgengilegt um allt húsnæðið.