MATUR OG DRYKKUR
Næs
Næs er veitingastaður í eigu Gísla Matt og fjölskyldu hans í Vestmannaeyjum.
Byggt á 14 ára reynslu frá hinum viðurkennda veitingastað Slippnum, býður Næs upp á rétti sem eru unnir frá grunni, úr besta hráefninu sem eyjan hefur upp á að bjóða. Ferskur fiskur beint af höfninni, villtar jurtir og árstíðabundið hráefni.
Huggulegt, ljúffengt og tlvalið til þess að deila!
Frumlegir kokteilar, náttúruvín og afslappað andrúmsloft.
Opið daglega frá kl. 11:00 í júní til september.
Bókaðu þitt borð á vefsíðu okkar www.naesrestaurant.is

