MATUR OG DRYKKUR

Gott

Fjölskylduveitingastaður á besta stað. Eigendurnir eru fyrrverandi landsliðskokkur og metsöluhöfundur matreiðslubóka.

GOTT er skapandi fjölskylduveitingarstaður í Vestmannaeyjum sem notar einungis ferskt og heilnæmt hráefni. Þú færð ekta eldbakaðar ítalskar Napolí pítsur, heimagert pasta, okkar eigin GOTT ís gerðan frá grunni og ferskan fisk sem sóttur er daglega af fiskmarkaðnum. Allar sósur, súpur og kökur eru löguð frá grunni á staðnum. Frábær stemmning og geggjaðir kokteilar. 

Hafðu það GOTT 


Yfirkokkurinn Sigurður F. Gíslason, fyrrum meðlimur kokkalandsliðs Íslands og Berglind Sigmarsdóttir kona hans reka og eiga veitingarstaðinn GOTT. Þau hafa gefið út tvær metsölu matreiðslubækur á Íslandi. Þriðja bókin þeirra hjóna ,,GOTT réttirnir okkar " kom út í október 2016 þar sem finna má uppskriftir af okkar vinsæla matseðli.

Facebook síða Gott

Instagram síða Gott

Heimasíða Gott

PANTA BORÐ