MATUR OG DRYKKUR
The Brothers brugghúsið
Það var í lok árs 2012 að nokkrir vinir í Vestmannaeyjum fengu þá snilldarhugmynd að byrja að brugga bjór. Það sem hófst sem sameiginlegt áhugamál þróaðist fljótt í það sem í dag er Brothers Brewery – einn af skemmtilegustu samkomustöðum Eyjanna.
Brothers Brewery er fjölskylduvæn og afslöppuð ölstofa þar sem áherslan er lögð á góðan handverksbjór, fjölbreytt úrval annarra drykkja og létt barsnarl í notalegu umhverfi. Hér hittast heimamenn og gestir til að njóta góðrar samveru, skála saman og upplifa þá einstöku stemningu sem Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða. Og auðvitað er alltaf ferskt popp á vélinni – því stundum eru einföldu hlutirnir bestir.
Fyrir þá sem vilja upplifa eitthvað sérstakt býður Brothers einnig upp á Verbúð, einstakt gistirými fyrir ofan brugghúsið. Þar geta gestir notið sannrar Eyjastemningar í notalegum herbergjum – og jafnvel fengið sér bjór beint af krana á herberginu.
Hvort sem þú ert að leita að góðum local bjór, skemmtilegri samveru með vinum eða ógleymanlegri gistiupplifun í Vestmannaeyjum, þá er Brothers Brewery staðurinn fyrir þig.
Komdu við, slakaðu á. Munum að njóta!

