safn byggt á sögu vestmannaeyja

Þjóðminjasafn Sagnheimar

Sagnheimar er safn byggt á sögu Vestmannaeyja. Auk fjölda merkilegra gripa og minnisvarða á safninu sjálfu er einnig að finna skemmtileg marmiðlunar efni sem gefur safninu meiri dýpt.  Á meðan hinir fullorðnu geta fræðst um sjávarútveg, lundaveiðar, eldgosið, tyrkjaránið og fleira, geta börnin klætt sig upp sem sjóræningjar og leitað af földum fjársjóðum í sjóræningjaskútu. 


Safnið er einstaklinga skemmtilega uppsett og mælum við með að allir þeir sem vilja Eyjarnar heim að sækja kíki í heimsókn.




Sýningar

Nokkrar fastar sýningar eru á safninu en leitast er við að brjóta rýmið reglulega upp með minni sýningum og viðburðum, sem þá eru auglýstir sérstaklega.


  • Eldgos á Heimaey
  • Sjávarútvegur
  • Tyrkjaránið
  • Konur
  • Þjóðhátíð
  • Oddgeir Kristjánsson
  • Fuglasafna Ólafs Tryggvasonar
  • Bryggjusvæði
  • Kapteinn Kohl og herfylkingin
  • Mormónar
Skoða sýningar

Þjóðminjasafn Sagnheima var hannað með það í huga að gera safnið gagnvirkt og nútímalegt. Safnið bæði snertir og sýnir sögufrægustu hluta Vestmannaeyjasögunnar. Ef þú vilt vita meira um Tyrkjaránið, Þjóðhátíð, lundamenningu í Vestmannaeyjum og hverjir Vestmannaeyingar eru þá verður þú að heimsækja þetta safn, við trúum því að þú verðir furðu ánægður.